30. maí 2008 eftir Linda Rós
Í fyrsta göngutúrnum vorum við fjórar (ég, Guðrún, Magga og Kristbjörg), svo datt þetta niður í einhverjar vikur vegna leiðindaveðurs, veikinda og fleira. Þar síðasta miðvikudag var þetta svo endurvakið og mættum við aftur fjórar í göngutúr (ég, Guðrún, Magga og Guðrún Erla). Síðasta miðvikudag vorum við enn og aftur fjórar (ég, Guðrún, Magga og Ella Bára). Við stefnum á allavega að vera fimm næsta miðvikudag svo ég hvet allar sófa kartöflur til að mæta !!!
Við stefnum á Úlfarsfell með leiðsögn Ellu Báru næsta miðvikudag (4. júní 2008).
Skrifað í Fréttir | 1 ummæli »
12. febrúar 2008 eftir Linda Rós
Ákveðið var að fella niður göngutúrinn miðvikudaginn 13. febrúar en mæta miðvikudaginn 20. febrúar.
Kveðja,
Linda Rós frænka
Skrifað í Fréttir | 3 ummæli »
7. febrúar 2008 eftir Linda Rós
Þetta blogger dæmi var ekki að virka gífurlega vel svo mér datt í hug að reyna að færa þetta. Ég nota wordpress fyrir síðuna mína og hef verið mjög ánægð. Það gengur samt eitthvað treglega að koma öllum bloggum og commentum yfir en ég er að vinna í þessu.
Þarf að gefa ykkur upp aðgang að þessu. Talið við mig á msn ! Er að spá í að hver og einn hafi bara sér aðgang í stað þess að það sé bara einn aðgangur fyrir hvert systkini, líst ykkur ekki vel á það ?
Kær kveðja,
Linda Rós frænka
Skrifað í Fréttir | 2 ummæli »
7. febrúar 2008 eftir Linda Rós
Nokkrir Kárastaðaættingjar hittust í Elliðaárdalnum í gær og tóku einn hring. Það var nú ekki mjög fjölmennt en góðmennt. Við vorum fjórar, Guðrún, Kristbjörg (sem kom með hundinn Prins með sér), ég og Magga.
Við ætlum að reyna að gera þetta eitthvað reglulegt og hvetjum alla til að vera með :-)
Kær kveðja,
Linda Rós frænka
Skrifað í Fréttir | Leave a Comment »
7. janúar 2008 eftir Linda Rós
Takk fyrir síðast kæru ættingjar en við hittumst allmörg á Kárastöðum 3. janúar og ákváðum að hafa bara eitthvað einfalt og þægilegt og enduðum á pylsupartýi.
Sjaldséðir gestir voru Hrafnhildur og hennar fjölskylda sem búsett eru í Danmörku. Annars var vel mætt að vanda. Guðrún frænka kom frá Búðardal, ég sagði nú að þó þetta hefði verið haldið á Egilstöðum þá hefði hún samt örugglega komið keyrandi ! Stoppar ekkert Guðrúnu frænku ;)
Kær kveðja,
Linda Rós frænka
Skrifað í Fréttir | 1 ummæli »
5. janúar 2008 eftir Linda Rós
Í dag var stelpan hennar Ellu Báru frænku skírð og hlaut hún nafnið Lilja Karen.
Til hamingju með nafnið litla frænka.
Kveðja,
Linda Rós frænka
Skrifað í Fréttir | 1 ummæli »
28. desember 2007 eftir Linda Rós
Kæru ættingjar
Vegna slæmrar veðurspár hefur 30. desember dottið út, kvöldið 3. janúar er kominn inn í staðinn. Hvernig líst ykkur á það ?
Kveðja,
Linda Rós
Skrifað í Fréttir | 1 ummæli »
21. desember 2007 eftir Linda Rós
Kæru ættingjar
Hvernig hljómar jólahittingur á Kárastöðum, 30. desember næstkomandi ?
Kveðja,
Linda Rós
Skrifað í Fréttir | 1 ummæli »
8. desember 2007 eftir Linda Rós
Jólaballið var haldið í Ölduselsskóla í dag, mætingin var mjög fín og allir skemmtu sér vel að vanda. Það var dansað í kringum jólatréð og tveir jólasveinar kíktu í heimsókn og gáfu krökkunum nammi.
Ég legg til að þetta verði haldið árlega.
Kveðja,
Linda Rós frænka
Skrifað í Fréttir | Leave a Comment »
2. nóvember 2007 eftir Linda Rós
Kæru ættingjar
Hún Magga frænka bað mig um að setja inn tilkynningu þess efnis að laugardaginn 8. desember verður fjölskyldujólaball í Ölduselsskóla, klukkan 14:00.
Kær kveðja,
Linda frænka
(held hún sé full bjartsýn að einhver lesi þetta lengur)
Skrifað í Fréttir | Leave a Comment »