Takk fyrir síðast kæru ættingjar en við hittumst allmörg á Kárastöðum 3. janúar og ákváðum að hafa bara eitthvað einfalt og þægilegt og enduðum á pylsupartýi.
Sjaldséðir gestir voru Hrafnhildur og hennar fjölskylda sem búsett eru í Danmörku. Annars var vel mætt að vanda. Guðrún frænka kom frá Búðardal, ég sagði nú að þó þetta hefði verið haldið á Egilstöðum þá hefði hún samt örugglega komið keyrandi ! Stoppar ekkert Guðrúnu frænku ;)
Kær kveðja,
Linda Rós frænka
Guðrún said…
Thíhíhí….. já ég hefði allavega gert það sem ég gæti til að koma hvar sem þetta væri haldið. Mér finnst bara svona gaman að hitta ykkur kæru ættingjar !
En annars, takk fyrir síðast, mér fannst gaman og vil endilega að við höldum áfram að hafa svona hittinga.
Bestu kveðjur úr Dölunum,
Guðrún og co.
7. janúar 2008 11:35
——————
Magga said…
Já þetta var alveg frábært. Og um að gera að láta vita ef ykkur dettur eitthvað í hug,þarf ekki að vera flókið ….Og hittingur er alltaf svo skemmtilegur ;o)
9. janúar 2008 22:24