Í fyrsta göngutúrnum vorum við fjórar (ég, Guðrún, Magga og Kristbjörg), svo datt þetta niður í einhverjar vikur vegna leiðindaveðurs, veikinda og fleira. Þar síðasta miðvikudag var þetta svo endurvakið og mættum við aftur fjórar í göngutúr (ég, Guðrún, Magga og Guðrún Erla). Síðasta miðvikudag vorum við enn og aftur fjórar (ég, Guðrún, Magga og Ella Bára). Við stefnum á allavega að vera fimm næsta miðvikudag svo ég hvet allar sófa kartöflur til að mæta !!!
Við stefnum á Úlfarsfell með leiðsögn Ellu Báru næsta miðvikudag (4. júní 2008).
Jæja, hvernig gengur ykkur með göngutúrana?