Feeds:
Færslur
Ummæli

Daníel Snær

Í dag var strákurinn hennar Möggu frænku skírður og hlaut hann nafnið Daníel Snær.

Til hamingju með nafnið litli frændi.

Kveðja,
Linda Rós frænka

Nýr ættarmeðlimur

Hún Magga frænka eignaðist strák í dag 29. september 2007.

Til hamingju með það frænka.

Heimasíða hans og eldri systkina hans er hér

Kveðja,
Linda Rós frænka

Barnseignir

Kárastaðaættin heldur áfram að vera söm við sig. Tvær óléttar í ættinni. Til hamingju með það frænkur.

Kveðja,
Linda Rós frænka

Gleðilegt nýtt ár

Kæru ættingjar

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt gamalt og gott. Ég vona að samverustundir okkar verði margar og gleðilegar á þessu ári.

Kveðja,
Linda Rós frænka

Skírn

Í dag var nýjasti ættarmeðlimurinn skírður og fékk hann nafnið Einar Óli. Síðan hans er hér.

Til hamingju með nafnið litli frændi.

Kveðja,
Linda Rós frænka

Gleðileg jól

Gleðileg jól kæru ættingjar :-)

Það var ánægjulegt að svona margir skyldu kíkja í sveitina í gær. Sérstaklega fannst mér ánægjulegt að hitta nýjasta fjórfætlinginn og nýjasta tvífætlinginn (ég bíð spennt eftir að heyra nafnið ;-)

Vona að þið hafið það allt ferlega gott yfir hátíðina.

Kveðja,
Linda Rós frænka.

Hittingurinn #2

Jæja, ég vildi bara ath. hvort við værum ekki öll komin í gírinn fyrir laugardaginn ? Ég kem allavegana, en samt ein á ferð því Óskar Ingi á ekki heimangengt vegna anna (hljómar þetta ekki vel?) En satt er það samt, það er svo mikið að gera hjá honum að hann því miður kemst ekki með í þetta skiptið og ég ætla bara að keyra fram og til baka. Segið svo að mér finnist ekki gaman að hitta ykkur ! :-)
En allavegana, ég hlakka til að sjá ykkur og vona að við verðum sem flest. Og kommentið núna eitthvað svo við sjáum að þið kíkið hingað ;-)
Munið, heima hjá Ellu Báru um klukkan 20:00
Sjáumst !
Guðrún

Hittingurinn

Hittingurinn verður heima hjá Ellu Báru, laugardaginn 4. nóvember. Mæting upp úr 20.00.

Kveðja,
Linda frænka

Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn dagsins er hún Elín amma sem er hvorki meira né minna en níræð í dag. Hún er jafnframt eini ættarmeðlimurinn sem á afmæli í október (nema ég hafi klúðrað afmælisdagaskráningunni). Janúar er því greinilega sá mánuður sem fæstir íhuga barneignir í ættinni okkar ;-)

Kveðja,
Linda frænka

Afmælisdagar

Nú er ég búin að setja inn afmælisdaga allra (birtist s.a afmælisbarn dagsins), ef þið sjáið einhverjar villur látið mig þá vita, gæti hafa klúðrað einhverju ;-)

Kveðja,
Linda Rós frænka

« Newer Posts - Older Posts »